Klikkaða klínkan!

.....loving u Djuli

19.09.2007 20:42:38 / julia

fallegt....

hahahaha......var að taka til í möppunum mínum og fann þetta fallega ljóð sem kæri litli bróðir minn samdi um mig. Takk Benni:D
 
 

Júlía hún er mín systir

kennir til margra drengja

svafst hjá einum og annan þú kysstir

fannst þér svo annan til að flengja

 

annars er allt gott að frétta ef einhver er að velta því fyrir sér, bara nenni ekki að blogga og mun ekki gera það í nánustu framtíð......



» 2 hafa sagt sína skoðun

19.03.2007 23:37:09 / julia

brainhouse..

Mad World
Gary Jules

All around me are familiar faces
Worn out places, worn out faces
Bright and early for their daily races
Going nowhere, going nowhere
Their tears are filling up their glasses
No expression, no expression
Hide my head I want to drown my sorrow
No tomorrow, no tomorrow
And I find it kind of funny
I find it kind of sad
The dreams in which I'm dying
Are the best I've ever had
I find it hard to tell you
I find it hard to take
When people run in circles
It's a very, very
Mad World
Mad world

Children waiting for the day they feel good
Happy Birthday, Happy Birthday
And I feel the way that every child should
Sit and listen, sit and listen
Went to school and I was very nervous
No one knew me, no one knew me
Hello teacher tell me what's my lesson
Look right through me, look right through me
And I find it kind of funny
I find it kind of sad
The dreams in which I'm dying
Are the best I've ever had
I find it hard to tell you
I find it hard to take
When people run in circles
It's a very, very
Mad World
Mad World
Illogical world
Mad World

» 3 hafa sagt sína skoðun

09.03.2007 00:26:33 / julia

it´s magic.....

 

Ekki þakka mér...þakkið kvefinu sem ég er með og rúminu mínu fyrir að láta mig sofa svona mikið í dag.........þess vegna blogga ég núna. Get ekki sofið og hef alveg nákvæmlega ekki neitt annað að gera. Skilst að sumir hreinlega liggji við tölvuna á hverjum degi með grátstafina í kverkunum oft á dag í von um nokkur orð frá mér....verði ykkur að góðu!

Af mér er eiginlega bara lítið sem nokkuð að frétta....vá þarf virkilega að huxa verulega mikið til að muna hvað hefur drifið mína daga síðan síðast.........hummm.....allavega hefur það án efa verið mikið stuð og gaman eins og alltaf. Það nýjasta nýja er að ég fór á tónleika með Bloodgroup á Sirkus um daginn, gargasta snilldin ein og þau eru klikk góð, gat allavega ekki setið kjurr og lagið Hips again kemur manni alveg í dillistuðið:d getið heyrt það á mæspeisinu mínu:)

Ætlaði að fara með Rósu vinkonu on the road til Akureyrar síðustu helgi en ekkert varð úr vegna veðurs...:(sem síðar reyndist ekki verða eins slæmt og horfur voru á. Var búin að hlakka svo rosalega til að komast úr bænum og fara á bretti sem hefur fengið að dúsa inní geymslu alltof alltof lengi.....en fær víst að dúsa þar enn um óákveðinn tíma:$ Einn daginn elskan mín...einn daginn munum við slæda brekkurnar og sleikja púðursnjóinn saman, ég lofa;)

Er svo búin að skrá mig í mótorhjólaprófið, það bóklega núna í enda mars og svo verklega eftir það.............loksins loksins segji ég!!!!! ætlaði að vera löngu búin að þessu, eldist með hverjum deginum og einhverntíman mun það verða of seint.....en ekki lengur:D Og svo er ég líka búin að sækja um skóla.....sem er algjört leyndó þar til í sumar þegar ég veit hvort ég komst inn....eða ekki! Spennó að vita og margt að hlakka til skal ég segja ykkur.......jáhá hvað get ég sagt meir?? Það gengur bara vel í vinnunni, bjargaði kannski meirað segja mannslífi um daginn en það er önnur saga. Vinn ennnþá á barnum (Domo) annað slagið þegar ég er ekki löt og það er góð tilbreyting frá klínkuvinnunni sem ég er stundum alveg að missa vitið á!! Almari gengur vel í skólanum en hann getur ekki beðið eftir að við tvö getum verið útaf fyrir okkur í kósýíbúð einhversstaðar og aldrei að vita nema að honum verið að ósk sinni í haust....bara bíðum og vonum:)

 

Þangað til næst.......stay true:*......og kvittið fyrir komuna takk8)


» 5 hafa sagt sína skoðun

03.01.2007 22:19:48 / julia

hóst hóst...!!

    já...veit......blogga meira Júlía....!!

» 1 hafa sagt sína skoðun

06.10.2006 23:38:56 / julia

back from the dead....

 

Ótrúlegt að ég sé sest niður að skrifa enn eitt bloggið jahérna er bara nokkuð hlessa á sjálfi mér!!!! en hef nú lítið annað að gera því ég get ekki hreyft mig.............er að drepast úr harðsperrum.........allsstaðar.....áiiiii já ég fór á taekwondoæfingu í gær, þá fyrstu eftir sumarfrí og shit hvað Sverrir þjálfari lét okkur púla!! elska samt að púla og svitna það er e-ð sem ég hefði ekki einu sinni látið mér detta í hug þegar ég var yngri og hataði íþróttir meira en allt!! en nú verður taekwondoið tekið með trompi:) búin að veðja við Kjartan að ef ég lendi undir 75% mætingu þá skuldi ég honum rauðvínsflösku af bestu sort þannig ég ligg í skítnum ef ég stend ekki við orð mín......game on!! Talandi um áfengi þá tók ég litla bróðir minn til fyrirmyndar (að hluta til) og hætti næstum, legg áherslu á orðið næstum:) alveg að drekka eftir að ég kom heim frá Tenerife, reyndar fór hann inná Vog og hætti alveg og ég er rosalega ólýsanlega stolt af honum að gera það, ekki sá fyrsti í ættinni til að þerra sig aðeins en örugglega sá fyrsti sem nær að halda sér þurrum........7-9-13:) hef bullandi trú á stráknum:) En já ég var að byrja á sögu......ok minnkaði að drekka og tjútta eftir að ég kom heim tjúttvinum mínum til mikillar gremju!! Fór síðan í afmæli til Lindu Maríu í Keftown síðustu helgi Hápunkturinn var tekinn frá fyrir afmælið og mikill tilhlökkun búin að liggja í loftinu enda var ég búin að ákveða að dansa af mér rassinn:) hjálpuðum Lindu að blása blöðrur og gera allt kósí fyrir kvöldið og líka blanda bolluna sem ég ætlaði aldeilis ekki að drekka því það er bara ávísun á gistingu inná baði!!Það má segja að orð mín hafi fallið með því sama því þegar ég smakkaði bolluna var ekki aftur snúið...........bollan var of góð Linda María og jarðaberin enn betri............Júlía auli!! missti af hellings tjútti en þetta var gott kvöld samt sem áður þrátt fyrir allt:) Varð samt mest skúffuð yfir því að gaurinn sem var að reyna við mig fyrir löngu sem mér fannst nú bara ekki mikið minn týpa þá er orðinn þetta líka gordjus gaur og labbaði út með troðinn vasa af símanúmerum.................hjá öllum gellunum...öllum nema hjá mér!!:S

En þótt ég sé auli sem á heima í Rvk og vinn á tannlæknastofu en langar að vera í skóla að læra hönnun en er alveg ógeðslega löt og er ekki með nennu til að gera möppu því sköpunargleðin liggur í dvala þá á ég samt yndisfagran bíl sem heitir Perla sem loksins er komin heim til mömmu sinnar eftir “smá” veikindafrí á Egilsstöðum. Ég lagðist gjörsamlega í dvala á meðan þessu veikindaleyfi hennar stóð yfir og gerði ekki rass í gati en nú hef ég vaknað úr rotinu.......thank god!! það var byrjaður að vaxa á mér mosi svo sver það....algjög félagskúkur eeeeeeeen no more letilúði kemst loksins á æfingar, svo eru það bara línuskautarnir og sund þar á milli, þarf reyndar að komast í meiri æfingu að heimsækja fólk sem ég ætla alltaf að heimsækja en hef enga trú á öðru en að Perla hjálpi mér við það fyrst hún er komin heim:).....ég er á leiðinni gott fólk;)

Almar er svo byrjaður í gítarskóla, svaka nettur með það og honum gengur bara vel enda hörkuduglegur strákur. Fyrir þá sem vita það ekki þá er hann greindur með athyglisbrest sem veldur því að hann nær ekki að einbeita sér að náminu, honum finnst þetta svo leiðinlegt því honum finnst svo gaman að læra og drekkur í sig hvaða þekkingu sem honum þyrstir í, hefur alltaf haft svo mikinn áhuga á öllu í kringum sig og spyr mikið og ef ég hef ekki svör á reiðum höndum þá gefst hann ekki upp fyrr en hann hefur svalað forvitni sinni, þessi litli prins sem kom svo þreyttur í heiminn en það er ekki að sjá það í dag, geislar af honum orkan:) Er svo svakalega ánægð að sjá hvað allir eru tilbúnir að hjálpa honum að takast á við þetta að maður á bara ekki til orð til að lýsa þakklætinu, búið að kippa í þónokkra spotta fyrir hann og koma honum í viðtöl hjá sérfræðingum sem annars tekur marga mánuði að fá tíma hjá ef ekki heilt ár! Svo að nú vonum við bara það besta og tökum bara einn dag í einu, lærum af honum hvað við getum gert til að sá næsti verði enn betri og njótum þess að lifa..............

 

Peace...........


» 7 hafa sagt sína skoðun

19.09.2006 07:36:30 / julia

!!

Er hætt að blogga.......eða hvað!?


» 1 hafa sagt sína skoðun

29.08.2006 12:28:52 / julia

Tiltekt

já ég henti ykkur öllum út, var að taka til. Þið nennið aldrei að blogga svo ekkert væl, ef þið viljið fá link þá látið mig bara vita og hunskist svo til að blogga annars hendi ég ykkur út aftur!!

» 10 hafa sagt sína skoðun

23.08.2006 21:35:01 / julia

letilúði

 

Ojjjjjj ég er svoooo löööööt sjitturinn titturinn ætla hér með að titla sjálfa mig sem mesta og lang latasta bloggara á þessu svæði, ef aðrir vilja gefa mér einhverja aðra titla þá eru þeir kærkomnir:) allavega nú hefst tilraun til bloggskrifa...þær eru nú orðnar þónokkrar sem enda eins og þær byrja......algjörlega á ekki neinu! Veit ekki hvernsvegna ég er ekki að nenna að skrifa, er hérna uppá hvern einasta dag næstum því á spjallinu og skoða hitt og þetta á netinu en hvað sem veldur þessu þá er það vonandi bara tímabundið bloggletikast, þarf að vera duglegri að taka lýsi!!

Ég ætla ekki að koma með neina ferðasögu fá Tenerife, þetta var bara klikkað gaman og ég naut hverrar mínútu til botns og á margar góðar minningar þaðan sem seint gleymast.

Eftir Tenerife fór ég austur á Héraðið fagra og upplifði toppin á sumrinu um verslunarmannahelgina, tónleika með Sigur Rós í Ásbyrgi, ég elska þessa hljómsveit og að sjá hana spila í þessu líka geðsjúklega flotta umhverfi var bara gæsahúð, svo margar góðar og gamlar minningar sem fylgja þessari tónlist og verð að viðurkenna að ég táraðist smá. Gistum í Hljóðaklettum og ég og Sindri grilluðum um nóttina með Árný og Baldri og ég steinsofnaði undir berum himni. Himnesk sæla:) Fórum síðan í jeppaferð með Oddný og Emil daginn eftir og sá Dettifoss í fyrsta sinn held ég......já ég er lúði! Og einnig fullt af fögrum fjöllum og fyrnindum:) enduðum svo herlegheitin með lúxusjarðbaði á Mývatni og út að borða á Gamla bænum amminammammamús:) Endaði svo helgina með að fara á tónleika með KK á Borgarfirði, troðið út úr dyrum og ég sat á gólfinu allan tímann, heila 3 klukkutíma takk fyrir!! en þetta voru góðir þrír tímar og sé ekki eftir þeim þó rassinn minn sé á öðru máli!!

En núna er ég brotlent í bænum, Almar byrjaður í skólanum og ég að vinna. Almar er hjá pabba sínum fram yfir helgi, Lilja er nebblega að læra undir próf og lítur varla uppúr brókarskræðunum og leiðinlegt fyrir hann að þurfa að hanga einn eftir skóla þangað til ég kem heim. Annars átti að vera mömmuhelgi en langt síðan hann hefur verið hjá pabba sínum og séð litla brósa sinn. Ég verð í fagra Keftown yfir helgina að passa Aríel Gauta og Alexsöndru Mist litlu krílin mín.

En allavegana Rockstar supernova var að byrja svo að ég segi ble í bili.

 

See ya....


» 3 hafa sagt sína skoðun

01.08.2006 23:57:05 / julia

home sweet home.....

Styttist ódar í heimkomu...... sjáumst og heyrumst tá:haha: er med tremma sjóridu eftir siglinguna í dag og meika ekki ad sitja og blogga en lofa ad tad verdur mjog soon......luv u8)

» 3 hafa sagt sína skoðun

12.07.2006 07:58:22 / julia

Adios amiogos

TENERIFETENERIFETENERIFE

8)Ég,  Almar,  Lilja,  Kristófer og Eiki

8)Sól og hiti

8)Ströndin

8)Heitur sjórinn

8).....og ennþá meiri sól

Sjáumst eftir 3 vikur:haha:

Hasta la vista beibí....


» 10 hafa sagt sína skoðun

28.06.2006 23:51:42 / julia

niðurtalning er hafin....

 

Jæja þá er heilsan að smella í lag, ég er byrjuð að geta andað eðlilega, sofið á nóttunni og gert almenn heimilsverk án þess að svitna og verða andstutt þannig ég ætla að drífa mig í vinnuna á morgun og svo er ég komin í helgafrí:haha: Ekki nein svaka erfið vinnuvika þar að baki en þessi ömurlega pest dró mig næstum í gröfina og vil ég þakka þeim sem komu með mat, nammi og dvd til mín yndislega vel fyrir, kossar á knús:* Lilja big sys er að koma heim á föstudaginn jeiiiiiiiii:D Sindri er líka að koma í heimsókn frá Danmörku jeiiiiiiiii:D og svo fæ ég útborgað á föstudaginn jeiiiiiiiii, endalaus hamingja að hellast yfir mig og enda mál til komið. Eeeeeeen núna eru síðustu forvöð til að koma sér (mér) í form fyrir fríið, aðeins 14 dagar til stefnu. Kvefskrattinn dróg aðeins úr mér þolið en nú er það bara harkan sex, ekkert nema hollusta og púl, drekka fjandann allan af vatni og vítamínum svo að ég verði ekki veik þarna úti, ég sver að ég mun fokking “#$%”#$%&”#$#$&&/#$GR/#$%”#%#$&/()(=Ö%%W#$&$%& og #$%&#$%/&%$%Y*$%&'$#%?%#*$%'”#*$%'................. og nákvæmlega það ef ég verð veik. :evil:

 

En kvefaða klínkan kveður með skömm og klikkaða klínkan vaknar eldhress og spærk á slaginu 6:00 á morgun pronto með pesto og punkti á eftir ininu.

góða nótt og munið að flossa elskurnar;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.06.2006 19:43:03 / julia

Sickgirl!

 

I´m going CRAZY:evil::evil::evil::evil::evil:

 Nei nú segji ég hingað og ekki lengra annars líður ekki að löngu þar til ég snýti sjálfri mér í pappírinn og sturti niður!! Vantar bara að ég fái ælu og drullupst og þá er heilaga þrenningin fullkomnuð!

Búin að sitja heima síðan á fimmtudag með flensu og ég er að fokking flippa, orðin frekar pirruð á að vera veik með hor og hósta allan daginn, snýtir mér dag og nótt nonstop og klósttpappírinn fer að verða búinn, get ekki sofið almennilega þó svo að ég hafi nánast heilt apótek í fína og flotta sjúkrakassanum mínum...........it sökks!!. Hitamælirinn sýnir þó að ég sé með eðlilegan líkamshita, já í fyrsta skipti sem ég er með nákvæmlega 37º.......held ég þurfi að kaupa mér nýjan mæli!:S Finn enga lykt og ekkert bragð, eða þá að ég finn e-ð annað bragð en á að vera, var að borða paprikusnakk í gær en ég fann bara laukbragð af því.....já það er allt frekar fukked up í augnablikinu. Skil í rauninni ekki hvernig ég fer að því að gera nokkurn skapaðann hlut með heilann svona fullan af hori og slími.....

Já svona er lífið í borginni í dag, fór ekki í vinnuna í dag og fer ekki á morgun þannig ég þarf biðja einhvern um að kaupa fyrir mig meiri wc-pappír!!8|

 

Kvefaða klínkan kveður

yfir og út...hor og hóst...:!::!:


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.06.2006 20:11:37 / julia

dansi dans...

 

ja góðan daginn gæskurnar!

Meðan þið voruð að sóla á ykkur kroppinn í dag og eruð því einu skrefi nær að fá húðkrabbamein:klikk:, þá sat ég með hor í nös á rassinum mínum inni sem var hin mesta skemmtun.....tjékk this át, þessi er alveg með´etta8)8) og fær 1000 kúlstig af 1000 mögulegum.............ætti kannski að fá hann með mér í danshópinn8) (sjá síðustu færslu)

P.s. meinti ekkert illt með húðkrabbameininu, þoli bara ekki þegar einhver er einu skrefi á undan mér:haha:


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.06.2006 18:35:02 / julia

smá slúður...

 

Hvaða sullumbulli á ég eiginlega að ljúga að ykkur núna greyin mín??

Ekkert nema svartsýnisrigningardagar að baki og vonandi ekki fleiri framundan, held að flestir séu sammála um það að vilja fá sumar á blessað suðurlandið, ekki sanngjarnt að austanfjallaliðið einoki svona sólina!! En jú sólin er aðeins farin að láta sjá sig en auðvitað ligg ég þá eins og aumingji með hor í nös að drukkna úr kvefi, lá reyndar eins og skata undir sæng útá svölum áðan en ég meikaði það ekki lengi þar sem garðurinn var fullur af trylltum, öskrandi og æpandi krökkumm.......nei hausinn minn ekki alveg að samþykkja það svona fullur af hor:S Var að spá hvort það sé hægt að hnerra með augun opin? mér hefur allavega ekki tekist það, ætli augun myndu hoppa út úr augntotunum eða??

 

Annars voða lítið sem ég er búin að gera annað en að hanga heima og glápa uppí loftið eða á tívíið enda peningaleysið algjört, Perla litla biluð og ég slefandi kvefuð. Ég sem ætlaði að skella mér á miðnætti og velta mér uppúr dögginni að miðnætti í kvöld að gömlum Jónsmessusið en það verður frá að víkja vegna veikinda.

 

Kíkti á tjúttið á síðastliðinn föstudag með Bjössa og ég endaði berfætt niðrí bæ sem segir bara eitt...........já steig á glerbrot og já það var vont og já ég var ekki sú gáfulegasta þetta kvöld, var alblóðug á löppinni og það horfðu bara allir á mig eins og ég væri nýsloppin af hæli en nei gott fólk ég fékk glerbrot í hælinn, stór munur þar á....góður aulahúmor hér á ferð:haha: En það verður víst voða lítið tjútt á manni þessa helgina og ætla ég því að nýta tímann vel til að æfa nokkur góð dansspor, þetta er víst það vel heitasta í dag vægt til orða tekið!! Þarf ég að segja meira? Verð án efa langflottust á næsta tjútti, væri náttúrulega langkúlast að æfa nokkur saman og taka svona hópdans, er einhver memm??

Ætla að enda þetta með að deila með ykkur þessum ljúfu tónum sem bera ykkur á bleiku skýji inní sæta helgarfríið....njótið vel


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.06.2006 16:06:18 / julia

Ísland ég hata þig...

Já það er satt ég hata þetta fokkings rigningarógeðsland vildi frekar vera í helvíti en á Íslandi, árstíðunum fer greinilega fækkandi, ekki lengur fjórar þið vitið vor, sumar, haust og vetur...þeim hefur fækkað um tvær og nú ríkir annaðhvort bara haust eða vor, aldrei sól og aldrei snór............BARA FOKKING RIGNING!!!!!!!!!!!! Ætla til Tenerife og kem ekki tilbaka..........


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
Klukkan
Countdown...
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1050 dögum